Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

"Þórður goddi hét maður er bjó í Laxárdal fyrir norðan á, sá bær heitir síðan á Goddastöðum", en þannig hljóðar upphaf XI. kafla í Laxdælu - og mun nafnið goddi þýða goðorðsmaður, en þar sleit bernskuskóm Ólafur Pá Höskuldsson. Bærinn hefur verið í byggð síðan og einn fárra á landinu sem fengið hafa áhrínisyrði, en það er "Nú er stand á Goddastöðum ......".

Fyrirtækið Goddi hefur boðið flestar tegundir af áklæði, leðri og leðurlíki til sölu í heild- og smásölu um 3ja áratuga skeið og þá af lager eða í sérpöntunum, en nú í seinni tíð hafa aðrar og óskyldar tegundir verið á boðstólum svo sem símaefni, arinofnar, hreinlætisvörur, kerrur og bátar svo fátt eitt sé nefnt.


Auðbrekku 19, 200 Kópavogi
Kennitala 470497-2549
Vsk.nr. 53859
Bankarkn. 1175-26-7730
 
Afgreiðslutími kl. 10-18 alla virka daga
Sími 544 5550
Farsími 822-4150
Fax 544 5551
 

Staðsetning